05. nóvember 2024
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir ráðin framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Seðlabankans
Gengið hefur verið frá ráðningu Lindu Kolbrúnar Björgvinsdóttur í starf framkvæmdastjóra háttsemiseftirlits Seðlabanka Íslands, en starfið var auglýst laust til umsóknar í lok september sl.
Linda Kolbrún hóf störf hjá Fjármálaeftirlitinu árið 2007 og vann til ársins 2018 sem lögfræðingur á eftirlitssviði og í lagalegu eftirliti. Frá árinu 2018 gegndi hún starfi forstöðumanns lagalegs eftirlits en tók síðan tímabundið við stöðu framkvæmdastjóra háttsemiseftirlits Seðlabankans í maí 2023. Linda Kolbrún er með B.ed-gráðu í kennslufræði frá Kennaraháskóla Íslands, BA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og MA-gráðu í lögfræði frá HR.