logo-for-printing

23. desember 2024

Umreikningur evrufjárhæða laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skuli fjárhæðir í evrum, sem tilgreindar eru í lögunum, umreiknast í starfrækslugjaldmiðil vátryggingafélags miðað við miðgengi evru gagnvart umræddum gjaldmiðli í lok dags 31. október næstliðins árs. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur umreiknað framangreindar fjárhæðir laganna, sbr. einnig tilkynningu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá október 2021 um uppfærslu fjárhæðanna.

Með vísan til framangreinds eru fjárhæðir í evrum nú eftirfarandi:

Umreiknaðar evrufjárhæðir laga 100/2016 fyrir árið 2025
Miðgengi evru fimmtudaginn 31. okt. 2024 skv. gengisskráningu Seðlabanka Íslands 148,90 kr. EUR ISK
3.gr. 1.tl. 3. mgr. 3.gr. 5.400.000 € 804.060.000 kr.
2.tl. 3. mgr. 3.gr. 26.600.000 € 3.960.740.000 kr.
3.tl. 3. mgr. 3.gr. 26.600.000 € 3.960.740.000 kr.
5.tl. 3. mgr. 3.gr. 600.000 € 89.340.000 kr.
5.tl. 3. mgr. 3.gr. 2.700.000 € 402.030.000 kr.
112. gr. 3.tl. 1.mgr. 112.gr 4.000.000 € 595.600.000 kr.
4.tl. 1.mgr. 112.gr 2.700.000 € 402.030.000 kr.
5.tl. 1.mgr. 112.gr 4.000.000 € 595.600.000 kr.
6.tl. 1.mgr. 112.gr 3.900.000 € 580.710.000 kr.
7.tl. 1.mgr. 112.gr 1.300.000 € 193.570.000 kr.
Samkvæmt 2. mgr. 172. gr. laga nr. 100/2016, sem leiðir í íslenskan rétt 300. gr. tilskipunar 2009/138/EC (Solvency II), skulu fjárhæðir í evrum sem vísað er til í framangreindum lögum uppfærðar á fimm ára fresti. Miða skal við breytingar á samræmdri vísitölu neysluverðs í Evrópusambandinu frá grunnvísitölu 31. desember 2015. Nemi breytingar á vísitölunni lægri hlutfallstölu en 5% á tímabilinu skulu fjárhæðir haldast óbreyttar. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skal birta uppfærðar fjárhæðir í íslenskum krónum. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birti í október 2021 tilkynningu sem uppfærði umræddar fjárhæðir tilskipunarinnar í samræmi við framangreint. Sjá um þetta enn fremur tilkynningu fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands frá desember 2022 þar sem fjárhæðirnar voru uppfærðar í samræmi við tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar.
Til baka