Tilkynning um yfirfærslu vátryggingastofns Vátryggingafélags Íslands hf. til VÍS trygginga hf.
Hinn 27. nóvember 2024 birti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (fjármálaeftirlitið) tilkynningu um fyrirhugaða yfirfærslu á vátryggingastofni Vátryggingafélags Íslands hf., kt. 690689-2009, til VÍS trygginga hf., kt. 670112-0470. Í tilkynningunni var óskað eftir því að vátryggingartakar, vátryggðir og aðrir sem hefðu sérstakra hagsmuna að gæta við flutning vátryggingastofns Vátryggingafélags Íslands hf. yfir til VÍS trygginga hf., myndu koma skriflegum athugasemdum sínum á framfæri við stofnunina.
Eftir yfirferð á beiðninni og viðeigandi gögnum veitti fjármálaeftirlitið hinn 30. desember 2024 leyfi fyrir yfirfærslu vátryggingastofns Vátryggingafélags Íslands hf. til VÍS trygginga hf. á grundvelli 4. mgr. 34. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi. Yfirfærslan fór fram 1. janúar sl.
Réttindi og skyldur vátryggingartaka, vátryggðra og annarra samkvæmt vátryggingasamningum halda sjálfkrafa gildi sínu við yfirfærsluna, sbr. 5. mgr. 34. gr. framangreindra laga.
Fjármálaeftirlitið veitir frekari upplýsingar sé þess óskað.