logo-for-printing

14. janúar 2025

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis

Bygging Seðlabanka Íslands
Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á seinni hluta ársins 2024 er nú aðgengileg hér á vef bankans. Viðamikið ítarefni fylgir skýrslunni.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Skýrslan hefur verið til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið þrjá reglulega fundi og var síðasta yfirlýsing nefndarinnar birt 20. nóvember 2024. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá júlí til desember 2024.

Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir seinni hluta ársins 2024.

Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar má finna hér: Skýrslur peningastefnunefndar til Alþingis
Til baka