20. janúar 2025
Gjaldeyrismarkaður, gengisþróun og gjaldeyrisforði árið 2024
Seðlabanki Íslands hefur birt yfirlitsfrétt um gjaldeyrismarkað, gengisþróun og gjaldeyrisforða á árinu 2024. Þar kemur meðal annars fram að gengi krónunnar hafi hækkað á árinu, gengisflökt var fremur lítið og heildarvelta á millibankamarkaði með gjaldeyri dróst saman milli ára. Seðlabankinn greip einu sinni inn í gjaldeyrismarkaðinn á árinu til þess að draga úr sveiflum í gengi krónunnar. Gjaldeyrisforði nam 886 ma.kr. í árslok eða 20% af vergri landsframleiðslu eins og árið áður.Sjá nánar í meðfylgjandi frétt: Gjaldeyrismarkaður, gengisþróun og gjaldeyrisforði árið 2024, frétt nr. 1/2025, 20. janúar 2025.