logo-for-printing

21. janúar 2025

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2025

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 12/2024 frá 19. desember sl. þar sem að meginvextir bankans hafa haldist óbreyttir síðan þá.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða því áfram 16,25% fyrir tímabilið 1. - 28. febrúar 2025.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir eru einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 28. febrúar 2025:

• Vextir óverðtryggðra útlána 8,60%
• Vextir verðtryggðra útlána 4,00%
• Vextir af skaðabótakröfum 5,73%

Sjá nánar hér: Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2025

 

Til baka