
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2025
.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 01/2025 frá 21. janúar sl. þar sem meginvextir bankans hafa lækkað um 0,50 prósentur síðan þá.
Dráttarvextir lækka því að sama skapi og verða 15,75% fyrir tímabilið 1.-31. mars 2025.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir um eru óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1.–31. mars 2025:
• Vextir óverðtryggðra útlána 8,60%
• Vextir verðtryggðra útlána 4,00%
• Vextir af skaðabótakröfum 5,73%
Sjá nánar hér: Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 2/2025.