
Yfirlýsing peningastefnunefndar 19. mars 2025

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,75%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.
Verðbólga var 4,2% í febrúar og hefur ekki verið minni í fjögur ár. Hjöðnun verðbólgu er á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hefur því einnig minnkað. Útlit er fyrir að áfram dragi úr verðbólgu á næstu mánuðum.
Hægt hefur á vexti eftirspurnar í takt við þétt taumhald peningastefnunnar og spennan í þjóðarbúinu er í rénun. Að sama skapi hefur dregið úr umsvifum á húsnæðismarkaði. Hátíðnivísbendingar gætu þó bent til þess að neysluútgjöld heimila hafi aukist á ný. Þá mælist enn mikil hækkun launakostnaðar og verðbólguvæntingar eru áfram yfir markmiði.
Þótt verðbólga hafi hjaðnað og verðbólguvæntingar lækkað síðustu misseri er verðbólguþrýstingur enn til staðar. Það kallar á áframhaldandi þétt taumhald peningastefnunnar og varkárni við ákvarðanir um næstu skref. Við bætist mikil óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum.
Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.
Frétt nr. 4/2025
19. mars 2025
Vextir verða því sem hér segir:
1. Daglán 9,50%
2. Lán gegn veði til 7 daga 8,50%
3. Innlán bundin í 7 daga 7,75%
4. Viðskiptareikningar 7,50%
Sjá nánar: Vextir og bindiskylda við Seðlabanka Íslands 19. mars 2025.