19.10.2011
Erindi seðlabankastjóra um lífeyriskerfið á Íslandi í alþjóðlegu samhengi
Már Guðmundsson seðlabankastjóri flutti erindi um íslenska lífeyriskerfið á málþingi í Hörpu 14. október síðastliðinn. Erindið ber heitið: Íslenska lífeyriskerfið: styrkleikar og veikleikar í alþjóðlegu samhengi.
Málþingið var haldið til heiðurs Hrafni Magnússyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Landssambands lífeyrissjóða, sem nýverið lét af því starfi eftir að hafa gegnt því í hátt á fjórða áratug.
Í erindinu fjallar seðlabankastjóri um styrkleika og veikleika hins þriggja stoða íslenska lífeyriskerfis í alþjóðlegu samhengi og greinir ýmsa þætti í sögulegum og alþjóðlegum samanburði.
Sjá nánar:
Erindi Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á málþingi í Hörpu 14. október 2011.pdf