05.09.2017
Erindi aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands um ástand og horfur í efnahagsmálum
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, flutti í dag erindi hjá Félagi atvinnurekenda um ástand og horfur í efnahagsmálum og um peningastefnuna hér á landi. Í erindinu fjallaði Þórarinn m.a. um hagstæð ytri skilyrði sem rekja má til búhnykkja og um vaxtandi spennu í þjóðarbúinu, jafnframt því sem hann lýsti minnkandi frávikum frá markmiðum peningastefnunnar og minni sveiflum í verðbólgu og verðbólguvæntingum.Hér má nálgast skjal með efni sem Þórarinn studdist við þegar erindið var flutt: Ástand og horfur í efnahagsmálum. Fyrirlestur Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands, hjá Félagi atvinnurekenda 5. september 2017.