09.11.2018
Kynningarefni aðalhagfræðings Seðlabankans í tilefni af vaxtaákvörðun og útgáfu Peningamála
Fulltrúar Seðlabanka Íslands hafa að jafnaði kynnt efni ritsins Peningamál í nokkrum fjármálafyrirtækjum. Eftir útkomu Peningamála á miðvikudag, 7. þessa mánaðar, hefur Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans og meðlimur í peningastefnunefnd, kynnt efni ritsins í Arion banka, Kviku banka og Íslandsbanka.
Kynningarefnið er aðgengilegt hér á vefnum: Peningamál 2018/4. Almenn kynning. Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Nóvember 2018.