17.09.2019
Opinn fundur peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis
Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Átjándi fundur peningastefnunefndar með Alþingi var haldinn 19. september kl. 09:00.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, og formaður peningastefnunefndar, og Gylfi Zoëga prófessor í hagfræði og peningastefnunefndarmaður, mættu á fundinn.
Útsendingu frá fundinum má finna á vefsíðu Alþingis..
Inngangsorð seðlabankastjóra frá fundinum er að finna hér: Inngangsorð seðlabankastjóra.