07.09.2020
Kynningar varaseðlabankastjóra á stöðu efnahagsmála
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti nýverið erindi um stöðu efnahagsmála hjá Samkeppniseftirlitinu og Félagi atvinnurekenda. Fyrra erindið var flutt miðvikudaginn 3. þessa mánaðar á fundi stjórnar Samkeppniseftirlitsins og í dag hélt Rannveig erindi á fundi Félags atvinnurekenda. Kynning Rannveigar bar yfirskriftina Efnahagshorfur á tímum heimsfaraldurs og fjallaði um efnahagshorfur og aðgerðir Seðlabanka Íslands í ljósi COVID-19 farsóttarinnar.Hér má finna skjöl með kynningum sem Rannveig studdist við á fundunum:
Kynningarglærur á fundi Samkeppniseftirlitsins
Kynningarglærur á fundi Félags atvinnurekenda