24.11.2021
Kynning aðalhagfræðings Seðlabankans á efni Peningamála
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands, kynnti nýlega efni nýútgefinna Peningamála á fundum í fjórum fjármálafyrirtækjum, þ.e. Kviku, Íslandsbanka, Arion banka og Arctic Finance. Í kynningunum greindi Þórarinn frá ýmsum atriðum varðandi ytri skilyrði, innlent raunhagkerfi og verðbólgu.
Kynningarefni sem Þórarinn studdist við má finna hér: Peningamál 2021/4 - Almenn kynning.
Ritið Peningamál má nálgast hér: Peningamál 2021/4.
Sjá hér sundurliðun á ýmsu efni í tengslum við útgáfu Peningamála.