22.03.2022
Varaseðlabankastjóri með erindi hjá Samiðn
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti mánudaginn 21. mars, erindi hjá Samiðn – sambandi iðnfélaga.
Í erindi sínu fjallaði Rannveig um stöðu efnahagsmála og óvissu í efnahagsþróun vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Auk þess fjallaði hún um þróun verðbólgu og aðgerðir Seðlabankans.
Hér má finna kynningu sem Rannveig studdist við á fundinum: Úr sóttkví í stríðsrekstur - Er óvissan endalaus?