Erindi varaseðlabankastjóra um seðlabankarafeyri
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti í vikunni erindi um seðlabankarafeyri á opnum umræðufundi í Iðnó sem Fjártækniklasinn og Seðlabankinn stóðu sameiginlega að. Erindi sitt byggði Rannveig m.a. á riti sem Seðlabankinn gaf út fyrr á árinu um seðlabankarafeyri, auk þess sem hún greindi frá alþjóðlegri þróun á þessu sviði og gerði grein fyrir afstöðu Seðlabanka Íslands.
Glærur sem sýndar voru með erindinu má nálgast hér: Seðlabankarafeyrir (Central bank digital currency). Erindi Rannveigar Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóra peningastefnu, á opnum umræðufundi með Fjártækniklasanum 18. október 2023.
Sjá hér rit Seðlabanka Íslands um seðlabankarafeyri: Sérrit nr. 17: Seðlabankarafeyrir. Útgefið í mars 2023.
Seðlabankinn tekur við ábendingum og svörum við spurningum sem settar eru fram í umræðukafla í ritinu á póstfangið sedlabanki@sedlabanki.is.