logo-for-printing

23.05.2024

Opnunarerindi seðlabankastjóra á Reykjavík Economic Conference

Í dag og á morgun fer fram ráðstefnan Reykjavík Economic Conference um hagstjórn í litlum og opnum hagkerfum, en hluti ráðstefnunnar er í opnu streymi. Það eru opnunarerindi Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra og svo erindi sem haldin eru af Tobias Adrian, framkvæmdastjóra hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Christopher J. Waller, sem er einn af seðlabankastjórum í Bandaríkjunum, hjá Federal Reserve System. 

Upptaka af erindi Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra og Tobias Adrian, framkvæmdastjóra hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, 23. maí 2024, er aðgengileg hér fyrir neðan.


Erindi Christopher J. Waller, seðlabankastjóra í Bandaríkjunum, fer fram 24. maí 2024 klukkan 13:20-14:00.

 

Til baka