Ný rannsóknarritgerð um sveifluna á fasteignamarkaði 2003-2012
Út er komin rannsóknarritgerð nr. 66, „Icelandic boom and bust: Immigration and the housing market“, eftir Lúðvík Elíasson. Í ritgerðinni er fjallað þá miklu sveiflu sem var á fasteignamarkaði á árunum 2003 til 2012.
NánarGrein Sigríðar Benediktsdóttur og Lúðvíks Elíassonar um áhrif Bankasambands Evrópu á ytri aðila
Sigríður Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands, og Lúðvík Elíasson, sérfræðingur í Seðlabanka Íslands, skrifa grein um áhrif Bankasambands Evrópu á þau lönd sem standa utan sambandsins. Greinin er birt í ráðstefnuriti Seðlabanka Austurríkis.
NánarKynningarefni aðalhagfræðings fyrir hagfræðinema
Seðlabanki Íslands tekur á móti ýmsum hópum og kynnir þeim starfsemi bankans. Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, kynnti háskólanemum í hagfræði undirbúning og gerð þjóðhagsspáa síðastliðinn föstudag. Kynningarefnið er nú aðgengilegt hér á vef bankans.
NánarErindi seðlabankastjóra á peningamálafundi Viðskiptaráðs
Már Guðmundsson seðlabankastjóri var aðalræðumaður á peningamálafundi Viðskiptaráðs Íslands sem haldinn var í Reykjavík í morgun. Erindi hans er nú aðgengilegt hér á vefnum.
Nánar