![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
![Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/unnur_fme_litur_minni.jpg?proc=ForsidaFrett)
Varaseðlabankastjóri með fyrirlestur á málþingi Fjártækniklasans
Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, var meðal ræðumanna á málþingi Fjártækniklasans sem haldið var í Hörpu hinn 27. maí síðastliðinn undir yfirskriftinni Hvað erum við að gera gegn peningaþvætti? Unnur fjallaði í fyrirlestri sínum um áhættumiðað eftirlit með aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka auk þess að fara yfir mismunandi áhættu sem steðjar að fjártæknifyrirtækjum á þessu sviði og kynna fjártækniþjónustuborð Seðlabankans.
Nánar![Rannveig Sigurðardóttir Rannveig Sigurðardóttir](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/sedlabankinn_rannveig_portret-6.jpg?proc=ForsidaFrett)
Varaseðlabankastjóri á fundi Samiðnar
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sótti miðstjórnarfund Samiðnar – Sambands iðnfélaga fimmtudaginn 4. júní. Á fundinum fór Rannveig yfir efnahagshorfur eins og þær birtust í nýrri verðbólgu- og þjóðhagsspá Seðlabankans í maíhefti Peningamála hinn 20. maí sl. Rannveig fjallaði um hvernig horfur hefðu versnað í kjölfar útbreiðslu COVID-19-farsóttarinnar og óvissunnar fram á við. Hún ræddi einnig aðgerðir bankans síðustu mánuði og áhrif þeirra.
Nánar