Varaseðlabankastjóri með erindi hjá EFTA um gögn og gagnavinnslu
Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, flutti í gær erindi á afmælisráðstefnu EFTA sem fjallaði um áskoranir ríkja Evrópu við að ná markmiði um að vera leiðandi í gagnamálum, en 30 ár eru liðin frá stofnun sérstakrar gagnadeildar EFTA. Yfirskrift ráðstefnunnar var „EFTA Statistical Office Conference on Data Stewardship – Chances and Challenges”. Yfirskrift erindis Gunnars, sem var á ensku, var „Data Matters: A Central Banking Perspective”.
NánarErindi um efnahagsmál á tímum farsóttarinnar
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu í bankanum, flutti fyrir helgi erindi fyrir MBA-nemendur í Háskóla Íslands. Titill erindisins er „Efnahagsmál á tímum farsóttarinnar.“
NánarVaraseðlabankastjóri með erindi hjá Samiðn
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti fimmtudaginn 2. desember erindi hjá Samiðn – sambandi iðnfélaga.
Nánar