Fara beint í Meginmál

Gögn yfir útboð verðbréfa eru birt mánaðarlega eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.

Gögnin miðast við stöðu í lok mánaðar og eru aðgengileg á mánaðarlegri tíðni frá janúar 1994.

Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is

Ítarleg gögn fyrir útboð verðbréfa  má nálgast á tímaraðaformi í Gagnabankanum

Útboð markaðsskuldabréfa og víxla

Gögnum um útboð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) er safnað í því skyni að fylgjast með þróun á útboðum verðbréfa (frumsölu, þ.e. nýjum útgáfum af skuldabréfum) hér á landi, flokkuð á útgefendur, formum og líftíma ásamt ávöxtunarkröfu við sölu þeirra. Seðlabankinn nýtir gögnin jafnframt í starfsemi sinni.

Lagagrundvöllur

Gagnasöfnunin fer fram á grundvelli 32. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Í samræmi við 41. gr. laganna hefur Seðlabankinn heimild að eiga upplýsingaskipti við opinbera aðila um atriði sem lög þessi taka til þegar upplýsingaskiptin eru í samræmi við lögmælt hlutverk Seðlabankans eða móttakanda.

Útboð verðbréfa

Gögn eru unnin eftir upplýsingum útgefenda eða milligönguaðila í útboði. Skráð verðbréf eru birt í Kauphöll (NASDAQ OMX Iceland). Útboðin eru flokkuð í opin og lokuð útboð við sölu og samtala þeirra reiknuð í hverjum mánuði.

Upplýsingar um útboð verðbréfa eru fengnar frá Lánamálum ríkisins, Íbúðalánasjóði (nú hættur starfsemi), bönkum, verðbréfafyrirtækjum og öðrum milligönguaðilum um útboð skuldabréfa.

Endurskoðun gagna

Nýjustu tölur eru ávallt bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum berist ný gögn frá skilaaðilum.

Leiðbeiningar fyrir skilaaðila er að finna í gagnaskilakerfi Seðlabanka Íslands.

Útboð

Verðbréf (skuldabréfa og víxlar) sem boðin eru til kaups á verðbréfamarkaði. Útboð verðbréfa geta verið opin (almenn) eða lokuð.

Opið útboð
Opin útboð eru almenn útboð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) sem boðin eru almenningi til kaups með almennri og opinberra auglýsingu með útboðslýsingum eða kynningu með öðrum hætti sem jafna má til opinberrar auglýsingar með útboðslýsingum.

Lokað útboð
Aðeins skilgreindur hópur geta tekið þátt í lokuðu útboði t.d. fjármálafyrirtæki (bankar, lífeyrissjóðir og önnur fjármálafyrirtæki) og fagfjárfestar. Lokuð útboð þarf ekki að auglýsa.

Frumsala
Sala á nýju (nýútgefnu) verðbréfi.

Innlendur aðili / Erlendur aðili

Innlendur aðili merkir sérhvern einstakling sem hefur lögheimili á Íslandi og lögaðila sem skráður er til heimilis á Íslandi, án tillits til ríkisfangs. Undanþegnir búsetuskilyrðum eru námsmenn og starfsmenn sendiráða. Þannig teljast íslenskir námsmenn og skyldulið þeirra sem búa erlendis vera innlendir aðilar og erlendir sendiráðsstarfsmenn teljast til erlendra aðila. Erlendur aðili merkir alla aðra aðila en innlenda.

útboð verðbréfa
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Febrúar 2026
útboð verðbréfa
17. apríl
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Mars 2026
Hagtölur
TitillTíðniNýjastTímabilNæstFlokkurGagnabanki
Efnahagur Seðlabanka ÍslandsMánaðarleg6. marsFebrúar 202610. aprílEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
LífeyrissjóðirMánaðarleg6. marsJanúar 202610. aprílEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
RaungengiMánaðarleg6. marsFebrúar 202610. aprílMarkaðir
Fjármálareikningar fjármálafyrirtækjaÁrsfjórðungsleg6. mars4. ársfjórðungur 20258. júníEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Greiðslujöfnuður við útlöndÁrsfjórðungsleg5. mars4. ársfj. 20254. júníGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlendar skuldirÁrsfjórðungsleg5. mars4. ársfj. 20254. júníGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlend staða þjóðarbúsinsÁrsfjórðungsleg5. mars4. ársfj. 20254. júníGreiðslujöfnuður við útlönd
GjaldeyrismarkaðurMánaðarleg4. marsFebrúar 20268. aprílMarkaðir
KrónumarkaðurMánaðarleg4. marsFebrúar 20268. aprílMarkaðir
Önnur fjármálafyrirtækiMánaðarleg27. febrúarJanúar 202627. marsEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðirMánaðarleg27. febrúarJanúar 202627. marsEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Lánasjóðir ríkisinsMánaðarleg27. febrúarJanúar 202627. marsEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
VerðbréfafjárfestingMánaðarleg27. febrúarJanúar 202630. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
Staða markaðsverðbréfaMánaðarleg27. febrúarJanúar 202631. marsMarkaðir
InnlánsstofnanirMánaðarleg25. febrúarJanúar 202625. marsEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GreiðslumiðlunMánaðarleg17. febrúarJanúar 202617. marsMarkaðir
TryggingafélögMánaðarleg17. febrúarDesember 202517. marsEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Útboð verðbréfaMánaðarleg17. febrúarJanúar 202617. marsMarkaðir
GjaldeyrisforðiMánaðarleg11. febrúarJanúar 202610. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
Bein fjárfestingÁrleg19. september202420. marsGreiðslujöfnuður við útlönd