Fara beint í Meginmál

Gögn yfir fjármálareikninga fjármálafyrirtækja eru birtir ársfjórðungslega eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.

Gögnin miðast við stöðu í lok ársfjórðungs og eru aðgengileg á ársfjórðungslegri tíðni frá árinu 2003.

Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is

Mótaðilaskipting í fjármálareikingum fjármálafyrirtækja 2. ársfjórðungs 2026

Fjármálareikningar fjármálafyrirtækja

Fjárhæðir eru í milljónum króna (m.kr.)

Gögnum um fjármálareikninga er safnað í því skyni að fá heildstætt yfirlit yfir helstu liði í efnahagsreikningum fjármálafyrirtækja sundurliðað eftir tegund fjár­mála­af­urðar og mótaðila. Þannig gefa þeir til kynna þróun fjár­hags­legra stærða hagkerfis og birta saman­tekt á upplýs­ingum frá þeim. Fjár­mála­reikn­ingar eru hluti af hagskýrslu­gerð Seðla­bankans og unnir í samstarfi við Hagstofu Íslands. Seðla­bankinn nýtir gögnin jafn­framt í starf­semi sinni.

Lagagrundvöllur

Gagnasöfnunin fer fram á grundvelli 32. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Í samræmi við 41. gr. laganna hefur Hagstofa Íslands einnig aðgang að þeim gögnum sem Seðlabankinn safnar skv. samstarfssamningi sem stofnanirnar hafa gert með sér.

Fjármálareikningar fjármálafyrirtækja

Fjármálareikningar eru hluti af uppgjöri þjóðhagsreikninga en það er alþjóðlegt, samræmt reikningskerfi sem veitir nákvæma yfirsýn yfir þjóðarbúið og viðskipti þess við önnur lönd. Fjármálareikningar mynda heildstætt yfirlit yfir helstu liði í efnahagsreikningum fjármálafyrirtækja, skipt niður á tegundir fjármálaafurða.

Við vinnslu fjármálareikninga er farið eftir alþjóðlegri aðferðafræði skv. þjóðhagsreikningastaðli Evrópusambandsins ESA2010. Um er að ræða fjármálalegar eignir og skuldir og er þeim skipt í 8 yfirliði.

Fjármálareikningar eru aðallega unnir upp úr árs‐ og efnahagsreikningum fyrirtækja á fjármálamarkaði. Efnahagsreikningar þeirra aðila sem skila gögnum beint til Seðlabankans eru birtir á heimasíðu Seðlabanka Íslands, nema efnahagsreikningar skilanefnda fjármálafyrirtækja í slitameðferð eða nauðasamningaferli.

Fjármálareikningar eru unnir í samstarfi við Hagstofu Íslands. Seðlabankinn sér um uppgjör fyrir fjármálafyrirtæki og gagnvart útlöndum. Hagstofan birtir  yfirlit fjármálareikninga fyrir hagkerfið í heild sinni ásamt hverjum undirgeira fyrir sig. Fjármálareikningar eru þannig uppbyggðir að eignir eins aðila eru skuldir annars aðila og eru allar fjárhæðir mótaðilaflokkaðar.

Endurskoðun gagna

Nýjustu tölur eru ávallt bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum berist ný gögn frá skilaaðilum.

Ársfjórðungsleg gögn eru endurskoðuð eftir því sem leiðréttingar berast á innsendum skýrslum til Seðlabanka Íslands og þegar nýir ársreikningar eru birtir. Árslokagögn eru endurskoðuð þegar endurskoðaðir ársreikningar fjármálafyrirtækja liggja fyrir.

Leiðbeiningar fyrir skilaaðila er að finna í gagnaskilakerfi Seðlabanka Íslands.

fjármálareikningar fjármálafyrirtækja
Uppfærslutíðni: Ársfjórðungsleg - 3. ársfjórðungur 2026
fjármálareikningar fjármálafyrirtækja
Uppfærslutíðni: Ársfjórðungsleg - 4. ársfjórðungur 2026
Hagtölur
TitillTíðniNýjastTímabilNæstFlokkurGagnabanki
GjaldeyrisforðiMánaðarleg9. októberSeptember 202610. nóvemberGreiðslujöfnuður við útlönd
LífeyrissjóðirMánaðarleg7. októberÁgúst 20265. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
RaungengiMánaðarleg7. októberSeptember 20266. nóvemberMarkaðir
Efnahagur Seðlabanka ÍslandsMánaðarleg7. októberSeptember 20266. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GjaldeyrismarkaðurMánaðarleg5. októberSeptember 20264. nóvemberMarkaðir
KrónumarkaðurMánaðarleg5. októberSeptember 20264. nóvemberMarkaðir
Staða markaðsverðbréfaMánaðarleg30. septemberÁgúst 202630. októberMarkaðir
VerðbréfafjárfestingMánaðarleg29. septemberÁgúst 202629. októberGreiðslujöfnuður við útlönd
Önnur fjármálafyrirtækiMánaðarleg28. septemberÁgúst 202627. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðirMánaðarleg28. septemberÁgúst 202627. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Lánasjóðir ríkisinsMánaðarleg28. septemberÁgúst 202627. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
InnlánsstofnanirMánaðarleg24. septemberÁgúst 202623. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Bein fjárfestingÁrleg21. september202518. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
GreiðslumiðlunMánaðarleg17. septemberÁgúst 202616. októberMarkaðir
TryggingafélögMánaðarleg17. septemberJúlí 202619. októberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Útboð verðbréfaMánaðarleg17. septemberÁgúst 202619. októberMarkaðir
GjaldeyrisviðskiptiMánaðarleg15. septemberÁgúst 202615. októberMarkaðir
Fjármálareikningar fjármálafyrirtækjaÁrsfjórðungsleg7. september2. ársfjórðungur 20267. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Greiðslujöfnuður við útlöndÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlend staða þjóðarbúsinsÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlendar skuldirÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd