Fara beint í Meginmál

Staða markaðsverðbréfa er birt mánaðarlega eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.

Gögnin miðast við stöðu í lok mánaðar og eru aðgengileg á mánaðarlegri tíðni frá janúar 1987.

Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is

Ítarleg gögn fyrir stöðu markaðsverðbréfa má nálgast á tímaraðaformi í Gagnabankanum

Staða markaðsverðbréfa eftir tegund bréfs

Fjárhæðir eru í milljónum króna (m.kr.)

Gögnum um stöðu markaðsverðbréfa er safnað í því skyni að fylgjast með stöðu verðbréfa sem útgefin eru á Íslandi og birta samantekt á upplýsingum frá þeim. Seðlabankinn nýtir gögnin jafnframt í starfsemi sinni.

Lagagrundvöllur

Gagnasöfnunin fer fram á grundvelli 32. gr. laga um Seðlabanka Íslands nr. 92/2019. Í samræmi við 41. gr. laganna hefur Seðlabankinn heimild að eiga upplýsingaskipti við opinbera aðila um atriði sem lög þessi taka til þegar upplýsingaskiptin eru í samræmi við lögmælt hlutverk Seðlabankans eða móttakanda.

Staða markaðsverðbréfa

Birtingin um stöðu markaðsverðbréfa sýnir umfang og þróun skráðra verðbréfa eftir helstu tegundum. Í október 2026 var gagnasöfnun og aðferðafræði birtingarinnar endurskoðuð. Helstu breytingar felast í nýjum gagnalindum, breyttri afmörkun þeirra verðbréfa sem falla undir birtinguna og samræmdari meðferð skuldabréfa og víxla.

Breytingarnar ná til allra liða birtingarinnar, að hlutdeildaskírteinum undanskildum, og gögn voru endurreiknuð frá og með október 2023. Fyrir breytinguna voru upplýsingar um skráð hlutabréf, skuldabréf atvinnufyrirtækja, skuldabréf sveitarfélaga og erlend skuldabréf fengnar frá Kauphöll Íslands (Nasdaq OMXI). Upplýsingar um ríkisverðbréf voru fengnar frá Lánamálum ríkisins en aðrar upplýsingar byggðu á mánaðarlegum efnahagsyfirlitum innlánsstofnana, annarra fjármálafyrirtækja, ÍL-sjóðs og verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða. Frá og með október 2023 byggja gögn um verðbréf (að hlutdeildaskírteinum undanskildum) á upplýsingum frá Nasdaq verðbréfamiðstöð (Nasdaq CSD) og Verðbréfamiðstöð Íslands. Gögn um hlutdeildaskírteini byggja áfram á mánaðarlegum efnahagsyfirlitum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða.

Nánari útlistun á breytingum má sjá í meðfylgjandi frétt.

 

Endurskoðun gagna

Nýjustu tölur eru ávallt bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum berist ný gögn frá skilaaðilum.

Leiðbeiningar fyrir skilaaðila er að finna í gagnaskilakerfi Seðlabanka Íslands.

Markaðsskuldabréf

Skuldabréf eru framseljanlegir fjármálagerningar sem gilda sem sönnun um skuld og boðin eru til kaups með útboði þar sem öll helstu einkenni bréfa í hverjum flokki eru hin sömu, þar á meðal nafn útgefanda (skuldara), fyrsti vaxtadagur og endurgreiðslu-, vaxta og uppsagnarákvæði eftir því sem við á. Markaðsskuldabréf eru gerð til að ganga kaupum og sölu á markaði ýmist í kauphöll eða beint yfir borð milli aðila (e. Over The Counter).

Tegund skuldabréfa í hagtölum Seðlabankans:

Verðtryggð markaðsskuldabréf
Höfuðstóll breytist í samræmi við ákv. vísitölu og yfirleitt gefin út í íslenskum krónum. Hér undir falla t.d. húsbréf, húsnæðisbréf og íbúðabréf, verðtryggð ríkisbréf (RIKS) og verðtryggð skuldabréf gefin út af atvinnufyrirtækjum, fjármálafyrirtækjum og sveitarfélögum.

Önnur markaðsskuldabréf og víxlar
Höfuðstóll er ekki tengdur neinni vísitölu - er óverðtryggður. Þessi bréf geta verið gefin út í íslenskum krónum eða erlendum gjaldmiðlum. Hér undir falla t.d. óverðtryggð ríkisbréf (RIKB), ríkisvíxlar (RIKV) og skuldabréf gefin út af atvinnufyrirtækjum, fjármálafyrirtækjum, sveitarfélögum og erlendum aðilum.

Hlutabréf og hluteildarskírteini

Hlutabréf
Ávísun á ákveðinn eignarhlut hluthafa í fyrirtæki sem rekið er sem hlutafélag. Hlutafélagið gefur út sérstakt skjal (hlutabréf) til sönnunar því að eigandi þess (hluthafi) eigi ákveðinn hlut í eignum fyrirtækisins og árlegum hagnaði þess. Hlutabréf eru oftast viðskiptabréf, þ.e. þau geta gengið kaupum og sölum eins og tilgreint er í samþykktum félagsins, ýmist í kauphöll eða beint yfir borð milli aðila. Við slit félags koma hlutabréf til greiðslu eftir að allar aðrar skuldir viðkomandi félags hafa verið greiddar.

Þegar fjárfestir á minna en 10% í félagi telst það til verðbréfaeignar. Sé hluturinn meiri telst hann til beinnar fjárfestingar og flokkast sem hlutur í hlutdeildarfyrirtæki eða tengdu fyrirtæki.

Hlutdeildarfyrirtæki
Fyrirtæki, þar sem beinn og óbeinn eignarhlutur nemur 10-50% af eigin fé eða atkvæðisrétti.

Tengt fyrirtæki
Dótturfyrirtæki fyrirtækis, móðurfyrirtæki þess eða systurfyrirtæki (þ.e. fyrirtæki undir sama móðurfyrirtæki). Skilyrði er að eignarhlutur sé > 50%.

Hlutdeildarskírteini
Fjármálagerningar sem staðfesta tilkall allra þeirra sem eiga hlutdeild í sjóði um sameiginlega fjárfestingu eða einstakri deild hans, til verðbréfaeignar sjóðsins. Eigendur hlutdeildarskírteina eiga rétt til tekna og eigna sjóðsins eða viðkomandi deildar, í sama hlutfalli og nemur hlutdeild þeirra í heildarfjölda útgefinna hlutdeildarskírteina.

Eigð fé
Eigið fé er allur eignahlutur eigenda í fyrirtæki. Eigið fé jafngildir mismun eigna og skulda.

Innlendur aðili / Erlendur aðili

Innlendur aðili merkir sérhvern einstakling sem hefur lögheimili á Íslandi og lögaðila sem skráður er til heimilis á Íslandi, án tillits til ríkisfangs. Undanþegnir búsetuskilyrðum eru námsmenn og starfsmenn sendiráða. Þannig teljast íslenskir námsmenn og skyldulið þeirra sem búa erlendis vera innlendir aðilar og erlendir sendiráðsstarfsmenn teljast til erlendra aðila. Erlendur aðili merkir alla aðra aðila en innlenda.

staða markaðsverðbréfa
30. nóvember 2026
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Október 2026
staða markaðsverðbréfa
30. desember 2026
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Nóvember 2026
staða markaðsverðbréfa
29. janúar 2027
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Desember 2026
Hagtölur
TitillTíðniNýjastTímabilNæstFlokkurGagnabanki
Staða markaðsverðbréfaMánaðarleg30. októberSeptember 202630. nóvemberMarkaðir
VerðbréfafjárfestingMánaðarleg29. októberSeptember 202630. nóvemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Önnur fjármálafyrirtækiMánaðarleg27. októberSeptember 202627. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðirMánaðarleg27. októberSeptember 202627. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Lánasjóðir ríkisinsMánaðarleg27. októberSeptember 202627. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
InnlánsstofnanirMánaðarleg23. októberSeptember 202625. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Útboð verðbréfaMánaðarleg19. októberSeptember 202617. nóvemberMarkaðir
TryggingafélögMánaðarleg19. októberÁgúst 202617. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GreiðslumiðlunMánaðarleg16. októberSeptember 202617. nóvemberMarkaðir
GjaldeyrisviðskiptiMánaðarleg15. októberSeptember 202616. nóvemberMarkaðir
GjaldeyrisforðiMánaðarleg9. októberSeptember 202610. nóvemberGreiðslujöfnuður við útlönd
LífeyrissjóðirMánaðarleg7. októberÁgúst 20265. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Efnahagur Seðlabanka ÍslandsMánaðarleg7. októberSeptember 20266. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
RaungengiMánaðarleg7. októberSeptember 20266. nóvemberMarkaðir
GjaldeyrismarkaðurMánaðarleg5. októberSeptember 20264. nóvemberMarkaðir
KrónumarkaðurMánaðarleg5. októberSeptember 20264. nóvemberMarkaðir
Bein fjárfestingÁrleg21. september202511. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
Fjármálareikningar fjármálafyrirtækjaÁrsfjórðungsleg7. september2. ársfjórðungur 20267. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Erlend staða þjóðarbúsinsÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Greiðslujöfnuður við útlöndÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlendar skuldirÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd