Fara beint í Meginmál

Gögn fyrir veltu á millibankamarkaði með gjaldeyri eru uppfærð hvern viðskiptadag um kl. 16:00 með tveggja daga tímatöf.

Gögnin eru aðgengileg á daglegri tíðni frá janúar 2009.

Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is

Ítarleg gögn fyrir gjaldeyrismarkað má nálgast á tímaraðaformi í Gagnabankanum

Velta á gjaldeyrismarkaði

Gögnum um gjaldeyrismarkað er safnað í því skyni að fylgjast með veltu á millibankamarkaði með gjaldeyri og inngripum Seðlabankans á gjaldeyri.

Lagagrundvöllur

Gagnasöfnunin er á grundvelli reglna nr. 600/2020 um gjaldeyrismarkað, settar með vísan til 27. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019 og laga nr. 70/2021 um gjaldeyrismál.

Gjaldeyrismarkaður

Daglegar tilkynningar eru um gjaldeyrisviðskipti á millibankamarkaði til Seðlabankans. Aðilar á millibankamarkaði tilkynna Seðlabankanum um dagleg gjaldeyrisviðskipti sín og því gjaldeyriskaup afstemmanleg við gjaldeyrissölu á millibankamarkaði á hverjum tíma.

Gengi íslensku krónunnar er ákvarðað á gjaldeyrismarkaði. Rétt til þátttöku á markaðnum hafa svokallaðir viðskiptavakar og Seðlabanki Íslands.

Endurskoðun gagna

Gögn eru endurskoðuð komi fram leiðréttingar frá viðskiptavökum eða í samráði við þá. Athugasemd er höfð við gögn fram að næsta birtingardegi hafi þau verið endurskoðuð.

Millibankamarkaður

Millibankamarkaður skiptist annars vegar í millibankamarkað með krónur og hins vegar í millibankamarkað með gjaldeyri.

Millibankamarkaður með krónur (krónumarkaður)
Markaður með skammtímalán milli aðila á markaðnum. Aðilar markaðarins skulu tilgreina vaxtatilboð inn- og útlána á markaðnum eigi sjaldnar en á 10 mínútna fresti. Útlánsvextir markaðarins nefnast REIBOR (Reykjavik Interbank Offered Rates) og innlánsvextirnir REIBID (Reykjavík Interbank Bid Rate). Samningstími lána á millibankamarkaði með krónur getur verið yfir nótt (ON), vika (SW), einn mánuður (1M), þrír mánuðir (3M) og sex mánuðir (6M).

Aðilar á millibankamarkaði með krónur senda Seðlabankanum tilkynningar um samninga jafnóðum og þeir hafa átt sér stað. Gögnin byggjast því á raunverulegum viðskiptum milli aðila.

Millibankamarkaður með gjaldeyri (gjaldeyrismarkaður)
Gengi íslensku krónunnar er ákvarðað á gjaldeyrismarkaði. Rétt til þátttöku á markaðnum hafa svokallaðir viðskiptavakar og Seðlabanki Íslands. Viðskiptavakar geta orðið aðilar sem hafa ótakmarkað starfsleyfi til gjaldeyrisviðskipta. Millibankamarkaður með gjaldeyri er opinn frá kl. 9:15 til 16.00 hvern viðskiptadag.

gjaldeyrismarkaður
03. september
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Ágúst 2026
gjaldeyrismarkaður
05. október
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - September 2026
Hagtölur
TitillTíðniNýjastTímabilNæstFlokkurGagnabanki
TryggingafélögMánaðarleg17. ágústJúní 202617. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Útboð verðbréfaMánaðarleg17. ágústJúlí 202617. septemberMarkaðir
GjaldeyrisforðiMánaðarleg12. ágústJúlí 20269. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd
RaungengiMánaðarleg10. ágústJúlí 20267. septemberMarkaðir
Efnahagur Seðlabanka ÍslandsMánaðarleg10. ágústJúlí 20267. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
LífeyrissjóðirMánaðarleg7. ágústJúní 20264. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GjaldeyrismarkaðurMánaðarleg6. ágústJúlí 20263. septemberMarkaðir
KrónumarkaðurMánaðarleg6. ágústJúlí 20263. septemberMarkaðir
Staða markaðsverðbréfaMánaðarleg31. júlíJúní 202631. ágústMarkaðir
VerðbréfafjárfestingMánaðarleg29. júlíJúní 202631. ágústGreiðslujöfnuður við útlönd
Lánasjóðir ríkisinsMánaðarleg27. júlíJúní 202627. ágústEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Önnur fjármálafyrirtækiMánaðarleg27. júlíJúní 202627. ágústEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðirMánaðarleg27. júlíJúní 202627. ágústEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
InnlánsstofnanirMánaðarleg24. júlíJúní 202625. ágústEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GreiðslumiðlunMánaðarleg17. júlíJúní 202618. ágústMarkaðir
Fjármálareikningar fjármálafyrirtækjaÁrsfjórðungsleg8. júní1. ársfjórðungur 20267. septemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Erlendar skuldirÁrsfjórðungsleg4. júní1. ársfj. 20263. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Greiðslujöfnuður við útlöndÁrsfjórðungsleg4. júní1. ársfj. 20263. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlend staða þjóðarbúsinsÁrsfjórðungsleg4. júní1. ársfj. 20263. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Bein fjárfestingÁrleg20. mars2024 uppfærsla21. septemberGreiðslujöfnuður við útlönd
GjaldeyrisviðskiptiMánaðarleg--25. ágústMarkaðir