Lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki
II. kafli. Starfsleyfi lánastofnunar
Efnisorð: EBA, CRD
Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki mega einungis lögaðilar sem hafa starfsleyfi sem lánastofnanir starfa við að taka við innlánum eða öðrum endurgreiðanlegum fjármunum frá almenningi. Við mat á því hvort starfsemi falli undir ákvæðið þarf að skoða heildstætt:
i) hvort tekið sé við innlánum eða öðrum endurgreiðanlegum fjármunum;
ii) hvort fjármunirnir komi frá almenningi; og
iii) hvort móttaka fjármunanna sé liður í starfsemi viðkomandi aðila.
Við mat á því hvort um „endurgreiðanlega fjármuni“ sé að ræða horfir Seðlabankinn meðal annars til þess hvort fyrir hendi sé skuldbinding um endurgreiðslu fjárhæðar eða önnur sambærileg krafa fjárveitanda gagnvart útgefanda/lántaka. Í því sambandi ræður heiti fjármálagernings eða samnings ekki úrslitum heldur fremur hvert efni og eðli ráðstöfunarinnar er. Ekki er skilyrði að greiddir séu vextir eða önnur sérstök þóknun.
Skuldabréf og aðrar skuldaviðurkenningar geta til að mynda fallið undir hugtakið endurgreiðanlegir fjármunir. Sama getur átt við um aðra samninga eða fjármögnunarfyrirkomulag sem felur í sér sambærilega skuldbindingu um endurgreiðslu.
Við mat á því hvort tekið sé við fjármunum „frá almenningi“ lítur Seðlabankinn til þess hvort félagið, við fjármögnun starfsemi sinnar, leiti eftir fjármögnun frá ótilgreindum eða breiðum hópi aðila, eða hvort fjármögnunin sé fyrir fram takmörkuð við ákveðinn og afmarkaðan hóp fjárveitenda. Ekkert eitt atriði ræður þó úrslitum, heldur er byggt á heildstæðu mati á eðli, tilgangi og framkvæmd fjármögnunarinnar.
Ef félag leitar eingöngu eftir fjármögnun frá fyrir fram ákveðnum og afmörkuðum hópi aðila, svo sem eigendum, tengdum aðilum eða starfsfólki fyrirtækis, er almennt síður um að ræða móttöku fjármuna frá almenningi. Við það mat getur meðal annars skipt máli hvort hópurinn sé í reynd lokaður, hvort og hvernig hann er afmarkaður og hvort nýir aðilar geti gengið inn í hann án sérstakra takmarkana.
Flokkun fjárfesta samkvæmt lögum nr. 115/2021, um markaði fyrir fjármálagerninga hefur ekki ein og sér afgerandi þýðingu við mat samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga um fjármálafyrirtæki. Hið sama á við um lágmarksfjárhæð fjárfestingar.
Við mat á því hvort aðili teljist „starfa við“ móttöku endurgreiðanlegra fjármuna frá almenningi er litið heildstætt til aðstæðna. Við matið er meðal annars litið til tilgangs og fyrirkomulags fjármögnunarinnar, hvers konar starfsemi aðilinn stundar, svo sem útlánastarfsemi, hvort fjármögnun með endurgreiðanlegum fjármunum fari fram með endurteknum eða reglubundnum hætti, umfangs og vægis fjármögnunarinnar, hvort nýir fjárfestar geti auðveldlega tekið þátt og hvort fjármögnunin er markaðssett eða miðlað til aðila sem eru ótengdir útgefanda.
Ekkert eitt þessara atriða ræður þó úrslitum heldur er byggt á heildstæðu mati á eðli og framkvæmd fjármögnunarinnar.
Dagsetning: 13. október 2026