Fara beint í Meginmál

Staða markaðsverðbréfa er birt mánaðarlega eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.

Gögnin miðast við stöðu í lok mánaðar og eru aðgengileg á mánaðarlegri tíðni frá janúar 1992.

Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is

Ítarleg gögn fyrir stöðu markaðsverðbréfa má nálgast á tímaraðaformi í Gagnabankanum

Staða markaðsverðbréfa eftir tegund bréfs

Fjárhæðir eru í milljónum króna (m.kr.)
Gögnum um stöðu markaðsverðbréfa er safnað í því skyni að fylgjast með stöðu verðbréfa sem útgefin eru á Íslandi og birta samantekt á upplýsingum frá þeim. Seðlabankinn nýtir gögnin jafnframt í starfsemi sinni.

Lagagrundvöllur

Gagnasöfnunin fer fram á grundvelli 32. gr. laga um Seðlabanka Íslands nr. 92/2019. Í samræmi við 41. gr. laganna hefur Seðlabankinn heimild að eiga upplýsingaskipti við opinbera aðila um atriði sem lög þessi taka til þegar upplýsingaskiptin eru í samræmi við lögmælt hlutverk Seðlabankans eða móttakanda.

Staða markaðsverðbréfa

Gögn um skráð hlutabréf og skuldabréf atvinnufyrirtækja, sveitarfélaga og erlend skuldabréf eru fengnar frá Kauphöll Íslands (Nasdaq OMXI). Upplýsingar um ríkisverðbréf eru fengnar frá Lánasýslu ríkisins. Aðrar upplýsingar eru teknar úr mánaðarlegum efnahagsyfirlitum innlánsstofnana, ýmissa lánafyrirtækja og hlutdeildarsjóða til Seðlabankans.

Endurskoðun gagna

Nýjustu tölur eru ávallt bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum berist ný gögn frá skilaaðilum.
Leiðbeiningar fyrir skilaaðila er að finna í gagnaskilakerfi Seðlabanka Íslands.

Markaðsskuldabréf

Skuldabréf eru framseljanlegir fjármálagerningar sem gilda sem sönnun um skuld og boðin eru til kaups með útboði þar sem öll helstu einkenni bréfa í hverjum flokki eru hin sömu, þar á meðal nafn útgefanda (skuldara), fyrsti vaxtadagur og endurgreiðslu-, vaxta og uppsagnarákvæði eftir því sem við á. Markaðsskuldabréf eru gerð til að ganga kaupum og sölu á markaði ýmist í kauphöll eða beint yfir borð milli aðila (e. Over The Counter).

Tegund skuldabréfa í hagtölum Seðlabankans:

Verðtryggð markaðsskuldabréf
Höfuðstóll breytist í samræmi við ákv. vísitölu og yfirleitt gefin út í íslenskum krónum. Hér undir falla t.d. húsbréf, húsnæðisbréf og íbúðabréf, verðtryggð ríkisbréf (RIKS) og verðtryggð skuldabréf gefin út af atvinnufyrirtækjum, fjármálafyrirtækjum og sveitarfélögum.

Önnur markaðsskuldabréf og víxlar
Höfuðstóll er ekki tengdur neinni vísitölu - er óverðtryggður. Þessi bréf geta verið gefin út í íslenskum krónum eða erlendum gjaldmiðlum. Hér undir falla t.d. óverðtryggð ríkisbréf (RIKB), ríkisvíxlar (RIKV) og skuldabréf gefin út af atvinnufyrirtækjum, fjármálafyrirtækjum, sveitarfélögum og erlendum aðilum.

Hlutabréf og hluteildarskírteini

Hlutabréf
Ávísun á ákveðinn eignarhlut hluthafa í fyrirtæki sem rekið er sem hlutafélag. Hlutafélagið gefur út sérstakt skjal (hlutabréf) til sönnunar því að eigandi þess (hluthafi) eigi ákveðinn hlut í eignum fyrirtækisins og árlegum hagnaði þess. Hlutabréf eru oftast viðskiptabréf, þ.e. þau geta gengið kaupum og sölum eins og tilgreint er í samþykktum félagsins, ýmist í kauphöll eða beint yfir borð milli aðila. Við slit félags koma hlutabréf til greiðslu eftir að allar aðrar skuldir viðkomandi félags hafa verið greiddar.

Þegar fjárfestir á minna en 10% í félagi telst það til verðbréfaeignar. Sé hluturinn meiri telst hann til beinnar fjárfestingar og flokkast sem hlutur í hlutdeildarfyrirtæki eða tengdu fyrirtæki.

Hlutdeildarfyrirtæki
Fyrirtæki, þar sem beinn og óbeinn eignarhlutur nemur 10-50% af eigin fé eða atkvæðisrétti.

Tengt fyrirtæki
Dótturfyrirtæki fyrirtækis, móðurfyrirtæki þess eða systurfyrirtæki (þ.e. fyrirtæki undir sama móðurfyrirtæki). Skilyrði er að eignarhlutur sé > 50%.

Hlutdeildarskírteini
Fjármálagerningar sem staðfesta tilkall allra þeirra sem eiga hlutdeild í sjóði um sameiginlega fjárfestingu eða einstakri deild hans, til verðbréfaeignar sjóðsins. Eigendur hlutdeildarskírteina eiga rétt til tekna og eigna sjóðsins eða viðkomandi deildar, í sama hlutfalli og nemur hlutdeild þeirra í heildarfjölda útgefinna hlutdeildarskírteina.

Eigð fé
Eigið fé er allur eignahlutur eigenda í fyrirtæki. Eigið fé jafngildir mismun eigna og skulda.

Innlendur aðili / Erlendur aðili

Innlendur aðili merkir sérhvern einstakling sem hefur lögheimili á Íslandi og lögaðila sem skráður er til heimilis á Íslandi, án tillits til ríkisfangs. Undanþegnir búsetuskilyrðum eru námsmenn og starfsmenn sendiráða. Þannig teljast íslenskir námsmenn og skyldulið þeirra sem búa erlendis vera innlendir aðilar og erlendir sendiráðsstarfsmenn teljast til erlendra aðila. Erlendur aðili merkir alla aðra aðila en innlenda.
staða markaðsverðbréfa
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Nóvember 2025
staða markaðsverðbréfa
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Desember 2025
Hagtölur
TitillTíðniNýjastTímabilNæstFlokkurGagnabanki
LífeyrissjóðirMánaðarleg4. desemberOktóber 20259. janúarEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Greiðslujöfnuður við útlöndÁrsfjórðungsleg4. desember3. ársfj. 20255. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlendar skuldirÁrsfjórðungsleg4. desember3. ársfj. 20255. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlend staða þjóðarbúsinsÁrsfjórðungsleg4. desember3. ársfj. 20255. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
VerðbréfafjárfestingMánaðarleg28. nóvemberOktóber 202530. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Staða markaðsverðbréfaMánaðarleg28. nóvemberOktóber 202530. desemberMarkaðir
Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðirMánaðarleg27. nóvemberOktóber 20255. janúarEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Önnur fjármálafyrirtækiMánaðarleg27. nóvemberOktóber 20256. janúarEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Lánasjóðir ríkisinsMánaðarleg27. nóvemberOktóber 20256. janúarEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
InnlánsstofnanirMánaðarleg25. nóvemberOktóber 202523. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GreiðslumiðlunMánaðarleg18. nóvemberOktóber 202517. desemberMarkaðir
TryggingafélögMánaðarleg18. nóvemberSeptember 202517. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GjaldeyrisforðiMánaðarleg17. nóvemberOktóber 202515. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Útboð verðbréfaMánaðarleg17. nóvemberOktóber 202517. desemberMarkaðir
Efnahagur Seðlabanka ÍslandsMánaðarleg7. nóvemberOktóber 20255. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GjaldeyrismarkaðurMánaðarleg7. nóvemberOktóber 20259. desemberMarkaðir
KrónumarkaðurMánaðarleg7. nóvemberOktóber 20259. desemberMarkaðir
RaungengiMánaðarleg7. nóvemberOktóber 20259. desemberMarkaðir
Bein fjárfestingÁrleg19. september202420. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
Fjármálareikningar fjármálafyrirtækjaÁrsfjórðungsleg8. september2. ársfjórðungur 20258. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja