Fara beint í Meginmál

Seðlabanki Íslands hefur m.a. eftirlit með starfsemi kauphalla, skipulagðra verðbréfamarkaða, markaðstorga fjármálagerninga, verðbréfamiðstöðva, sjóðum og rekstrarfélögum sjóða og upplýsingaskyldu útgefenda í samræmi við 2. gr. laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998.

Seðlabankinn hefur einnig eftirlit með viðskiptum á markaði með það markmið að tryggja eðlilega verðmyndun og að markaðsaðilar starfi eftir lögum og reglum.

MiFID II og MiFIR

Gildissvið MiFID II er víðtækara en í MiFID I regluverkinu og nær til að mynda til samsettra innstæðna. MiFIR reglugerðin felur í sér víðtækar kröfur um gagnsæi fyrir og eftir viðskipti. Seðlabanki Íslands tekur á móti fyrirspurnum vegna MiFID II og MiFIR.

Lýsingar

Lýsing er samheiti yfir skjal eða skjöl sem gefa þarf út vegna almenns útboðs verðbréfa eða töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.

CSDR T+1

Hinn 11. október 2027 mun reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/2075 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 (Central Securities Depositories Regulation, CSDR) að því er varðar styttingu uppgjörstíma í sambandinu (CSDR T+1) koma til framkvæmda í Evrópu. Stytting uppgjörstíman í T+1 er liður í því að styrkja samkeppnishæfni evrópskra fjármagnsmarkaða.

Skortsölureglugerðin

Í skortsölureglugerðinni eru gerðar kröfur um að skortstöður séu tilkynntar til lögbærra yfirvalda (Seðlabankinn er lögbært yfirvald í tilviki Íslands) að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Aðgerðir gegn markaðssvikum

Þann 1. september 2021 tóku gildi lög nr. 60/2021, með þeim öðlaðist reglugerð Evrópusambandsins (ESB) nr. 596/2014 frá 16. apríl 2014 um markaðssvik (MAR), lagalegt gildi á Íslandi. Markaðssvik er hugtak sem nær yfir ólögmæta hegðun á fjármálamörkuðum og í skilningi MAR nær það yfir innherjasvik, ólögmæta miðlun innherjaupplýsinga og markaðsmisnotkun.

Upplýsingaskylda útgefenda og flagganir

Útgefandi verðbréfa, í skilningi 2. mgr. 2. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, skal birta almenningi á Evrópska efnahagssvæðinu eins fljótt og auðið er og á jafnræðisgrundvelli þær upplýsingar sem fjallað er um í lögum nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.

Evrópsk græn skuldabréf

Skuldabréf getur eingöngu fengið merkingu sem „evrópskt grænt skuldabréf“ eða „EuGB“ ef útgefendur þess uppfylla ákveðnar kröfur. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/2631 frá 22. nóvember 2023 um evrópsk græn skuldabréf og valkvæða skýrslugjöf um skuldabréf sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og sjálfbærnitengd skuldabréf tók gildi innan Evrópusambandsins 21. desember 2024.

Lög, reglur og eyðublöð