10. janúar 2025
Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals
Auglýst er eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals og veittur er af Seðlabanka Íslands.
Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að því að varðveita og miðla menningarverðmætum sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.
Styrkfjárhæðin nemur fimm milljónum króna og verður henni úthlutað í maí 2025. Heimilt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda.
Umsóknarfrestur er til og með 14. mars 2025.
Sótt er um styrkinn með útfyllingu eyðublaðs hér: Skjalagátt Seðlabankans
Nánari upplýsingar: Sigrún María Einarsdóttir á skrifstofu seðlabankastjóra í netfanginu sedlabanki@sedlabanki.is eða í síma 569-9600