Erlend staða þjóðarbúsins er birt ársfjórðungslega, um tveimur mánuðum eftir lok ársfjórðungs, eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.
Á sama tíma er einnig gefin út fréttatilkynning með helstu niðurstöðum. Seðlabankinn sendir sömu gögn til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og evrópsku hagstofunnar. Gögnin eru aðgengileg á heimasíðum viðkomandi stofnana um 1-2 mánuðum eftir birtingu Seðlabankans.
Gögnin eru unnin á ársfjórðungslegri tíðni og eru aðgengileg frá árinu 1995.
Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is
Hér má nálgast tímaraðaskjal fyrir erlenda stöðu þjóðarbúsins á 2.ársfjórðungi 2026
Erlend staða þjóðarbúsins
Fjárhæðir eru í milljónum króna (m.kr.)
Gögnum um erlenda stöðu þjóðarbúsins er safnað í því skyni að mæla verðgildi fjáreigna innlendra aðila (kröfur á erlenda aðila) og skuldir þeirra við erlenda aðila. Seðlabankinn nýtir gögnin jafnframt í starfsemi sinni.
Hagskýrslugerð um erlenda stöðu þjóðarbúsins er í samræmi við staðal Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) „Balance of Payments and International Investment Position Manual, 6th edition“ (BPM6). Staðallinn skilgreinir framsetningu, aðferðafræði, verðmat og hugtök.
Lagagrundvöllur
Grundvöllur upplýsingasöfnunar, uppgjörs og birtingar beinnar fjárfestingar á sér stoð í IX. kafla laga nr. 92/2019 um Seðlabanka Íslands og í lögum um gjaldeyrismál nr. 70/2021. Þessi lög (og viðkomandi reglugerðir og reglur Seðlabanka Íslands nr. 861/2022 um almenna tilkynningarskyldu samkvæmt lögum um gjaldeyrismál) kveða á um upplýsingaskyldu innlendra aðila og trúnaðarskyldu starfsmanna Seðlabankans um gögnin sem safnað er til hagskýrslugerðar.
Erlend staða þjóðarbúsins
Erlend staða þjóðarbúsins sýnir, við lok hvers ársfjórðungs, verðgildi erlendra fjáreigna innlendra aðila og skuldir þeirra við erlenda aðila. Munurinn á eignum og skuldum er hrein staða þjóðarbúsins og táknar hún þá annað hvort hreina eign eða hreina skuld við erlenda aðila.
Upplýsingar um erlenda stöðu þjóðarbúsins eru fengnar frá viðskiptabönkum, öðrum fjármálafyrirtækjum og lánastofnunum, Seðlabankanum og stærri fyrirtækjum. Auk þess er stuðst við gögn frá ríkisskattstjóra og ársreikningaskrá.
Endurskoðun gagna
Nýjustu tölur eru ávallt bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum berist ný gögn frá skilaaðilum.
Hagtölurnar fylgja fastri endurskoðunaráætlun þar sem áður birtar tölur eru endurskoðaðar eftir því sem upplýsingar berast. Berist nýjar upplýsingar sem hafa þýðingarmikil áhrif á hagtölurnar er leitast við að uppfæra hagtölurnar sem fyrst. Áætlunin er í töflunni hér að neðan.
Tími | Mars | Júní | September | Desember |
|---|---|---|---|---|
Ársfjórðungar | Hámark 15 ársfjórðungar | Hámark 4 ársfjórðungar | Hámark 17 ársfjórðungar | Hámark 6 ársfjórðungar |
Einnig er framkvæmd meiriháttar endurskoðun (e. benchmark revision) á 5 ára fresti.
Leiðbeiningar fyrir skilaaðila er að finna í gagnaskilakerfi Seðlabanka Íslands.
| Titill | Tíðni | Nýjast | Tímabil | Næst | Flokkur | Gagnabanki |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Staða markaðsverðbréfa | Mánaðarleg | 30. september | Ágúst 2026 | 30. október | Markaðir | |
| Verðbréfafjárfesting | Mánaðarleg | 29. september | Ágúst 2026 | 29. október | Greiðslujöfnuður við útlönd | |
| Önnur fjármálafyrirtæki | Mánaðarleg | 28. september | Ágúst 2026 | 27. október | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir | Mánaðarleg | 28. september | Ágúst 2026 | 27. október | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Lánasjóðir ríkisins | Mánaðarleg | 28. september | Ágúst 2026 | 27. október | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Innlánsstofnanir | Mánaðarleg | 24. september | Ágúst 2026 | 23. október | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Bein fjárfesting | Árleg | 21. september | 2025 | 18. mars | Greiðslujöfnuður við útlönd | |
| Greiðslumiðlun | Mánaðarleg | 17. september | Ágúst 2026 | 16. október | Markaðir | |
| Tryggingafélög | Mánaðarleg | 17. september | Júlí 2026 | 19. október | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Útboð verðbréfa | Mánaðarleg | 17. september | Ágúst 2026 | 19. október | Markaðir | |
| Gjaldeyrisviðskipti | Mánaðarleg | 15. september | Ágúst 2026 | 15. október | Markaðir | |
| Gjaldeyrisforði | Mánaðarleg | 9. september | Ágúst | 9. október | Greiðslujöfnuður við útlönd | |
| Raungengi | Mánaðarleg | 7. september | Ágúst 2026 | 7. október | Markaðir | |
| Efnahagur Seðlabanka Íslands | Mánaðarleg | 7. september | Ágúst 2026 | 7. október | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Fjármálareikningar fjármálafyrirtækja | Ársfjórðungsleg | 7. september | 2. ársfjórðungur 2026 | 7. desember | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Lífeyrissjóðir | Mánaðarleg | 4. september | Júlí 2026 | 7. október | Efnahagsreikningar fjármálafyrirtækja | |
| Gjaldeyrismarkaður | Mánaðarleg | 3. september | Ágúst 2026 | 5. október | Markaðir | |
| Krónumarkaður | Mánaðarleg | 3. september | Ágúst 2026 | 5. október | Markaðir | |
| Greiðslujöfnuður við útlönd | Ársfjórðungsleg | 3. september | 2. ársfj. 2026 | 3. desember | Greiðslujöfnuður við útlönd | |
| Erlendar skuldir | Ársfjórðungsleg | 3. september | 2. ársfj. 2026 | 3. desember | Greiðslujöfnuður við útlönd | |
| Erlend staða þjóðarbúsins | Ársfjórðungsleg | 3. september | 2. ársfj. 2026 | 3. desember | Greiðslujöfnuður við útlönd |