logo-for-printing

Greiðslumiðlun

16. mars

Febrúar 2023

Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 97,0 ma.kr. í febrúar 2023 og skiptist þannig að velta debetkorta var 41,4 ma.kr og velta kreditkorta var 55,6 ma.kr.

Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands í febrúar var 74,9 ma.kr. sem er um 9,2 ma.kr. aukning miðað við febrúar 2022. Skiptist veltan þannig að velta debetkorta var 33,7
ma.kr og velta kreditkorta var 41,1 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 19,7 ma.kr. í febrúar sl. sem er aukning um 5,0 ma.kr frá sama mánuði árið 2022.

Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í febrúar 2023 var 18,8 ma.kr. sem jafngildir 8,3 ma.kr. hærri veltu miðað við sama mánuð árið 2022.

Tölur eru byggðar á upplýsingum frá íslenskum færsluhirðum og kortaútgefendum.
Vinsamlegast athugið að frá og með septembermánuði 2020 er innlend debetkortavelta í bönkum og hraðbönkum undanskilin í kortaveltutölum. Sama gildir um greiðslur kreditkorta m.v. innheimtutímabil.



Næsta birting: 17. apríl 2023


Umsjón

Gagnaþjónusta | adstod@sedlabanki.is