logo-for-printing

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum

Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2021. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2022. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2023 til næstu endurskoðunar að ári.

Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á þriggja ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:

Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):

             Ástralskur dalur fellur út

Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):

             Singapúr dalur fellur út

Í vöruviðskiptavogum eykst vægi Bandaríkjadals nokkuð milli ára, en á móti minnkar vægi sterlingspunds. Í þjónustuviðskiptum eykst vægi Bandaríkjadals töluvert auk þess sem vægi sænsku krónunnar eykst nokkuð. Mest dregur úr vægi sterlingspunds en einnig dregur nokkuð úr vægi norsku krónunnar. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar að mestu leyti, en þar eykst vægi Bandaríkjadals mest milli ára og vægi Sterlingspunds minnkar mest.

Vogir 2022

Vogir 2022

Eldri tilkynningar:

Sýna allt

  • Frá 2021

  • Frá 2020

  • Frá 2019

  • Frá 2018

  • Frá 2017

  • Frá 2016

  • Frá 2015

  • Frá 2014

  • Frá 2013

  • Frá 2012

  • Frá 2011

  • Frá 2010

  • Frá 2009

  • Frá 2008

  • Frá 2007

  • Frá 2006

Nánari upplýsingar veitir Hagfræði og pengingastefna í síma 569-9600.