logo-for-printing

Lífeyrissjóðir

06. nóvember

September 2023

Eignir lífeyrissjóða námu 6.885,5 ma.kr. í lok september og lækkuðu um 26 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 6.140,1 ma.kr. og séreignadeilda 745,4 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.393,9 ma.kr. og lækkuðu um 54,7 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.444,3 ma.kr. og lækkuðu um 9,4 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 962,5 ma.kr. og lækkuðu um 58,2 ma.kr. Útlán námu 617,5 ma.kr. og hækkuðu um 5,8 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 2.491,6 ma.kr. í lok september og hækkuðu um 28,6 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 2.393,8 ma.kr. og hækkuðu um 27,4 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 279 m.kr. og námu 10,1 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 6.875 ma.kr. í lok september.


Næsta birting: 06. desember 2023


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is