logo-for-printing

Lífeyrissjóðir

04. júní

Apríl 2024

Eignir lífeyrissjóða námu 7.566,1 ma.kr. í lok apríl og lækkuðu um 3,2 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 6.732,2 ma.kr. og séreignadeilda 833,9 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.613,9 ma.kr. og hækkuðu um 29,3 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.513,3 ma.kr. og hækkuðu um 7,1 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.033,6 ma.kr. og hækkuðu um 13,5 ma.kr. Innlend útlán námu 659,1 ma.kr. og hækkuðu um 3,2 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 2.952,2 ma.kr. í lok apríl og lækkuðu um 32,5 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 2.868,8 ma.kr. og lækkuðu um 32,3 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 849 m.kr. og námu 8,9 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 7.555,9 ma.kr. í lok apríl.


Næsta birting: 05. júlí 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is