logo-for-printing

Raungengi

08. júlí

Júní 2024

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 93,1 stig í júní sl. og hækkaði um 0,6% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 2,9% hærri í júní sl. samanborið við júní árið 2023.

Á öðrum ársfjórðungi ársins 2024 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 93,0 stig (2005=100) sem er 0,9% hækkun miðað við fyrsta ársfjórðung 2024.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 98,0 stig (2005=100) á fyrsta ársfjórðungi 2024, hækkaði um 3,8% miðað við fjórða ársfjórðung 2023- (vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar á öðrum ársfjórðungi 2024 verður birt í byrjun september n.k. þegar gögn þar að lútandi verða tiltæk).


Næsta birting: 08. ágúst 2024

Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is
Hagfræði og peningastefna | raungengi@sedlabanki.is