logo-for-printing

Gjaldeyrisforði og tengdir liðir

12. júlí

Júní


Vergur gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 887,5 ma.kr. í lok júní og lækkaði um 26,4 ma.kr. milli mánaða.

Í júní fór fram uppgreiðsla ríkisins á Evru láni að fjárhæð 36,5 ma.kr. sem tekið var í júní 2019. Einnig var tekið nýtt lán að fjárhæð 50 milljónir Evra, jafnvirði um 7,5 milljarða króna.

Nettó útgreiðslur gjaldeyriseigna Seðlabankans og ríkissjóðs fyrir næstu 12 mánuði eru áætlaðar um 4,7 ma.kr. miðað við lok júní samanborið við 40,7 ma.kr. miðað við lok maí.


Næsta birting: 16. ágúst 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is