logo-for-printing

Greiðslumiðlun

16. júlí

Júní 2024

Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 122,4 ma.kr. í júní sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 52,7 ma.kr en velta kreditkorta var 69,7 ma.kr.

Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands í júní sl. nam 93,3 ma.kr. sem er um 1,2 ma.kr. hærri velta miðað við júní á síðasta ári. Skiptist veltan í júní sl. þannig að velta debetkorta var 41,5 ma.kr en velta kreditkorta var 51,8 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 26,3 ma.kr. í júní sl. sem er 1,3 ma.kr hærri velta en í júní á síðasta ári.

Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í júní 2024 var 31,6 ma.kr. sem um 5,1 ma.kr. lægri velta miðað við júní 2023.

Tölur eru byggðar á upplýsingum frá íslenskum færsluhirðum og kortaútgefendum.
Vinsamlegast athugið að frá og með septembermánuði 2020 er innlend debetkortavelta í bönkum og hraðbönkum undanskilin í kortaveltutölum. Sama gildir um greiðslur kreditkorta m.v. innheimtutímabil.


Næsta birting: 16. ágúst 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is