logo-for-printing

Bankakerfi

23. ágúst

Júlí 2024

Eignir innlánsstofnana námu 5.624,8 ma.kr. í lok júlí og hækkuðu um 35,9 ma.kr í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.194,9 ma.kr. og hækkuðu um 15,4 ma.kr. Erlendar eignir námu 430 ma.kr. og hækkuðu um 20,5 ma.kr. Innlendar skuldir voru 3.913 ma.kr. og hækkuðu um 32,4 ma.kr. í júlí. Erlendar skuldir námu 904,9 ma.kr. og lækkuðu um 6,7 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 806,9 ma.kr. í lok júlí og hækkaði um 10,2 ma.kr. í mánuðinum.

Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 57,1 ma.kr. í lok júlí, þar af voru verðtryggð lán 49,4 ma.kr., óverðtryggð lán -3,1 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 9,5 ma.kr. og eignarleiga 1,3 ma.kr.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 19,4 ma.kr. í júlí, þar af námu lán með veði í íbúð 19,0 ma.kr. sem var 5,1 ma.kr. aukning frá júní. Í júlí námu ný verðtryggð útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum 35 ma.kr. og ný óverðtryggð útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu -15,5 ma.kr.


Næsta birting: 25. september 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is