logo-for-printing

Önnur fjármálafyrirtæki

27. ágúst

Júlí 2024

Heildareignir annarra fjármálafyrirtækja í lok júlí námu 262,0 ma.kr. og lækkuðu um 3,3 ma.kr. milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 238,4 ma.kr. og erlendar eignir 23,5 ma.kr. Innlendar eignir hækkuðu um 2,9 ma.kr. á milli mánaða og erlendar eignir lækkuðu um 6,2 ma.kr.

Skuldir annarra fjármálafyrirtækja námu 227,3 ma.kr. og lækkuðu um 3,3 ma.kr. í júlí. Þar af námu innlendar skuldir 214,0 ma.kr. og erlendar skuldir 13,4 ma.kr. Eigið fé nam 34,6 ma.kr. í lok júlí og hækkaði um 114 m.kr frá fyrri mánuði.


Næsta birting: 27. september 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is