logo-for-printing

Lífeyrissjóðir

04. september

Júlí 2024

Eignir lífeyrissjóða námu 7.785,7 ma.kr. í júlí og hækkuðu um 63,5 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 6.923,7 ma.kr. og séreignadeilda 861,9 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.703,2 ma.kr. og hækkuðu um 42,7 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.577 ma.kr. og hækkuðu um 16,2 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.038,7 ma.kr. og hækkuðu um 25,3 ma.kr. Innlend útlán námu 666,3 ma.kr. og hækkuðu um 3,5 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.082,5 ma.kr. í lok júlí og hækkuðu um 20,9 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.009,7 ma.kr. og hækkuðu um 28,7 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 164 m.kr. og námu 6,5 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 7.774,7 ma.kr. í lok júlí.


Næsta birting: 04. október 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is