logo-for-printing

Fjármálareikningar fjármálafyrirtækja

06. september

2. ársfjórðungur 2024

Heildarfjármunaeign fjármálafyrirtækja á 2. ársfjórðungi 2024 nam 20.439,9 ma. kr. og hafði hækkað um 254,4 ma. kr. frá 1. ársfjórðungi 2024. Helstu breytingar voru þær að hlutafjáreign og annað eigið fé hækkaði um 139,1 ma.kr. og útlán hækkuðu um 85,9 ma.kr. Heildarskuldir fjármálafyrirtækja námu 20.503,1 ma.kr. og hækkuðu um 256,1 ma.kr. á ársfjórðungnum. Helstu breytingar voru þær að seðlar og innlán hækkuðu um 108,5 ma.kr. Nettó fjármunaeign fjármálafyrirtækja á 2. ársfjórðungi 2024 var neikvæð um 185,7 ma.kr.

Staða á útlánum fjármálafyrirtækja til heimila í lok 2. ársfjórðungs 2024 var 3.053,0 ma.kr. þar af námu skuldir heimila með veði í íbúð 2.665,8 ma.kr. Staða á útlánum fjármálafyrirtækja til fyrirtækja í lok 2. ársfjórðungs 2024 var 2.574,5 ma.kr. að teknu tilliti til niðurfærslna. Eign fjármálafyrirtækja í markaðsskuldabréfum fyrirtækja nam 521,193 ma.kr.

Fjármálareikningar eru birtir sem heildar efnahagsyfirlit fjármálafyrirtækja en einnig eru birtar töflur sem skipta þeim niður annars vegar eftir tegundum fjármálafyrirtækja og hins vegar eftir mótaðilum.Tímaraðir eru birtar fyrir heildina og einnig skiptar niður eftir tegundum fyrirtækja. Til viðbótar eru birtar tímaraðir með skuldum fyrirtækja við fjármálafyrirtæki, annars vegar skipt eftir lánveitendum og hins vegar eftir tegundum lána. Einnig eru birtar tímaraðir með eign fjármálafyrirtækja á skuldabréfum útgefnum af atvinnufyrirtækjum. Tímaröðum með skuldum heimila við fjármálafyrirtæki er skipt eftir lánveitendum og tegundum lána. Einnig er birt tímaröð um skuldir heimila með veði í íbúð sundurliðað eftir tegundum lána.

Fjármálareikningar eru unnir samkvæmt aðferðafræði sem byggir á þjóðhagsreikningastaðli Evrópusambandsins (ESA2010) og staðli Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um hagtölur peninga- og fjármála.

Hagstofa Íslands birtir fjármálareikninga fyrir allt hagkerfið á vefsíðu sinni.

Fjármálareikningar á vefsíðu Hagstofunnar.


Næsta birting: 06. desember 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is