logo-for-printing

Greiðslumiðlun

17. september

Ágúst 2024

Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 131,9 ma.kr. í ágúst sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 59,4 ma.kr en velta kreditkorta var 72,5 ma.kr.

Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands í ágúst sl. nam 100,4 ma.kr. sem er 6,4 ma.kr. hærri velta en í ágúst á síðasta ári. Veltan í ágúst sl. skiptist þannig að velta debetkorta var 44,9 ma.kr en velta kreditkorta var 55,4 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 28,6 ma.kr. í ágúst sl. sem er 5,3 ma.kr hærri velta en í ágúst á síðasta ári.

Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í ágúst 2024 var 48,1 ma.kr. sem er 4 ma.kr. hærri velta en í ágúst 2023.


Næsta birting: 16. október 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is