logo-for-printing

Bein fjárfesting

19. september

2023

Bein fjárfesting erlendra aðila innanlands

Í árslok 2023 var heildar bein fjármunaeign erlendra aðila á Íslandi 1.281 ma.kr. Beint fjárfestingarflæði til Íslands nam 66 ma.kr. á árinu.

Flæði hlutafjárviðskipta erlendra aðila í innlendum félögum nam 143 ma.kr á árinu 2023. Á sama tíma voru áhrif endurfjárfestingar á heildarflæði 57 ma.kr til lækkunar.

Hlutfall eiginfjáreignar af heildar beinni fjármunaeign í lok ársins 2023 var 63% og restin í formi lánsfjármagns milli eignatengdra aðila.

Stærstu beinu fjárfestingarlöndin í árslok voru Lúxemborg, Noregur, Holland, Bretland og Sviss.

Bein fjárfesting erlendra aðila innanlands er að stærstum hluta í félögum tengdum álframleiðslu og lyfjaiðnaði. Um 47% af beinni fjármunaeign er í eignarhaldsfélögum en stór hluti þeirra félaga tengjast áðurnefndum atvinnugreinum.

Bein fjárfesting innlendra aðila erlendis

Í árslok 2023 var bein fjármunaeign innlendra aðila erlendis 726 ma.kr. en beint fjárfestingarflæði var jákvætt um 10 ma.kr. á árinu.

Af heildar beinni fjármunaeign innlendra aðila erlendis var 87% í formi eiginfjár.

Um 52% beinnar fjármunaeignar er skráð í Hollandi en megnið af því fjármagni er í eignarhaldsfélögum.

Stærstu beinu fjárfestarnir eru félög sem tengjast lyfjaiðnaði, tækja- og vélaframleiðslu sem og sjávarútvegi. Af fjárfestingu innlendra aðila erlendis er tæpur helmingur í eignarhaldsfélögum sem að stærstum hluta tengjast áðurnefndum atvinnugreinum.

Skilgreiningar

Bein fjárfesting mælir beina fjármunaeign og beint fjárfestingarflæði sem eru til komin vegna viðskipta á milli innlendra og erlendra aðila sem eru í beinu fjárfestingarsambandi.

Beint fjárfestingarsamband: Beinn fjárfestir, beint fjárfestingarfyrirtæki og önnur eignatengd félög teljast vera í beinu fjárfestingarsambandi sín á milli.

Beinn fjárfestir er sá aðili sem í krafti eignarhlutar hefur yfirráð eða áhrif á stjórnun annars félags sem ekki er skráð til búsetu í sama landi. Fjárfestirinn ræður
samanlagt yfir 10% eða meira af atkvæðamagni í félaginu.

Annað

Talnaefni í töflu hagtalna tilgreinir samtölur samandregnar atvinnugreinaskiptingar sem og flokkun á stærstu viðskiptalöndum án sértækra félaga.

Til viðbótar við uppfærðar tölur fyrir landa- og atvinnugreinaskiptingu ársins 2023 eru birtar ársfjórðungslegar samtölur eftir eðli viðskipta frá árinu 2013 til ársins 2024.

Sértæk félög í erlendri eigu áttu rúmlega 34 ma.kr. í beinni fjármunaeign skráðri innanlands í árslok 2023. Þeir fjármunir eru svo aftur eignir í erlendum félögum.

Nánari sundurliðun með og án sértækra félaga er að finna á vef OECD. Hlekkur á vefinn er að finna undir liðnum annað tengt efni hér á síðunni. Gagnagrunnur OECD er uppfærður í desember ár hvert.


Næsta birting: 20. mars 2025


Umsjón

Gagnamál | bop@sedlabanki.is