logo-for-printing

Bankakerfi

25. september

Ágúst 2024

Eignir innlánsstofnana námu 5.710,6 ma.kr. í lok ágúst og hækkuðu um 85,8 ma.kr í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.223,5 ma.kr. og hækkuðu um 28,6 ma.kr. Erlendar eignir námu 487,1 ma.kr. og hækkuðu um 57,2 ma.kr. Innlendar skuldir voru 3.953,2 ma.kr. og hækkuðu um 40,2 ma.kr. í ágúst. Erlendar skuldir námu 944,4 ma.kr. og hækkuðu um 39,5 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 813 ma.kr. í lok ágúst og hækkaði um 6,1 ma.kr. í mánuðinum.

Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 26 ma.kr. í lok ágúst, þar af voru verðtryggð lán 26,6 ma.kr., óverðtryggð lán -3,9 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 1,7 ma.kr. og eignarleiga 1,6 ma.kr.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 13,6 ma.kr. í ágúst, þar af námu lán með veði í íbúð 11,1 ma.kr. sem var 7,9 ma.kr. lækkun frá júlí.


Næsta birting: 24. október 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is