logo-for-printing

Lífeyrissjóðir

04. október

Ágúst 2024

Eignir lífeyrissjóða námu 7.898,2 ma.kr. í ágúst og hækkuðu um 112,5 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.021,9 ma.kr. og séreignadeilda 876,3 ma.kr.

Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.737,9 ma.kr. og hækkuðu um 34,7 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.604,1 ma.kr. og hækkuðu um 26,9 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.058,3 ma.kr. og hækkuðu um 19,6 ma.kr. Innlend útlán námu 668,5 ma.kr. og hækkuðu um 2,1 ma.kr.

Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.160,2 ma.kr. í lok ágúst og hækkuðu um 77,8 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.084,6 ma.kr. og hækkuðu um 74,9 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum lækkuðu um 1,5 ma.kr. og námu 5 ma.kr.

Hrein eign lífeyrissjóða nam 7.885,4 ma.kr. í lok ágúst.


Næsta birting: 05. nóvember 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is