logo-for-printing

Raungengi

08. október

September 2024

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 92,1 stig í september sl., lækkaði um 0,5% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 1,4% lægri í september sl. samanborið við september árið 2023.

Á þriðja ársfjórðungi ársins 2024 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 93,0 stig (2005=100) sem er 0,1% lækkun miðað við annan ársfjórðung 2024.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 100,2 stig (2005=100) á öðrum ársfjórðungi 2024, hækkaði um 3,9% miðað við fyrsta ársfjórðung 2024 - (vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar á þriðja ársfjórðungi 2024 verður birt í byrjun desember n.k. þegar gögn þar að lútandi verða tiltæk).


Næsta birting: 07. nóvember 2024

Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is
Hagfræði og peningastefna | raungengi@sedlabanki.is