logo-for-printing

Tryggingafélög

17. október

Ágúst 2024

Heildareignir vátryggingafélaga námu 333,0 ma.kr. í lok ágúst. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 312,7 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 20,3 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 266,7 ma.kr. og erlendar eignir námu 66,3 ma.kr.

Innlendar skuldir félaganna námu 160,5 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 145,3 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 160 m.kr.

Í lok ágúst nam eigið fé tryggingafélaga 172,3 ma.kr. og hækkaði um 2,7 ma.kr. á milli mánaða.

Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.


Næsta birting: 18. nóvember 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is