Lífeyrissjóðir
05. nóvember
September 2024
Eignir lífeyrissjóða námu 7.945,5 ma.kr. í september og hækkuðu um 47,3 ma.kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 7.062 ma.kr. og séreignadeilda 883,5 ma.kr.
Innlendar eignir lífeyrissjóða námu 4.802,7 ma.kr. og hækkuðu um 64,8 ma.kr. á milli mánaða. Innlend markaðsskuldabréf námu 2.615,6 ma.kr. og hækkuðu um 11,5 ma.kr. og innlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 1.090,3 ma.kr. og hækkuðu um 32,1 ma.kr. Innlend útlán námu 671,6 ma.kr. og hækkuðu um 3,2 ma.kr.
Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 3.142,8 ma.kr. í lok september og lækkuðu um 17,4 ma.kr. milli mánaða. Erlend hlutabréf og hlutdeildarskírteini námu 3.072,4 ma.kr. og lækkuðu um 12,2 ma.kr. og innlán í erlendum innlánsstofnunum hækkuðu um 0,6 ma.kr. og námu 5,6 ma.kr.
Hrein eign lífeyrissjóða nam 7.931,3 ma.kr. í lok september.
Næsta birting:
04.
desember 2024
Töflur
Tímaraðir
Lýsigögn
Annað tengt efni