logo-for-printing

Erlend staða þjóðarbúsins

03. desember

3. ársfjórðungur 2024

Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.793 ma.kr. eða 40,2% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 130 ma.kr. eða 2,9% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 6.351 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 4.558 ma.kr. Á fjórðungnum batnaði staðan um 39 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Erlendar eignir jukust um 76 ma.kr. og skuldir um 37 ma.kr. Gengis- og verðbreytingar juku virði eigna á ársfjórðungnum um 103 ma.kr. og minnkuðu virði skulda um 5 ma.kr. og leiddu því til 109 ma.kr. betri hreinnar erlendrar stöðu. Gengi krónunnar lækkaði um tæp 0,4% á fjórðungnum miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum hækkaði um 6% milli fjórðunga og verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði um 8,9%.


Næsta birting: 06. mars 2025


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is