logo-for-printing

Efnahagur Seðlabanka Íslands

06. desember

Nóvember 2024

Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 939,7 ma.kr. í lok nóvember og hækkuðu um 10,4 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 36 ma.kr. og lækkuðu um 82 m.kr. og erlendar eignir námu 903,6 ma.kr. og hækkuðu um 10,5 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 841,7 ma.kr. og hækkuðu um 10,7 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 762,9 ma.kr. og hækkuðu um 10,9 ma.kr. og erlendar skuldir námu 78,8 ma.kr. og lækkuðu um 225 m.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 903,4 ma.kr. og hækkaði um 10,5 ma.kr. í nóvember.


Næsta birting: 13. janúar 2025


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is