Fjármálareikningar fjármálafyrirtækja
06. desember
3. ársfjórðungur 2024
Heildarfjármunaeign fjármálafyrirtækja á 3. ársfjórðungi 2024 nam 20.939,9 ma. kr. og hafði hækkað um 443,5 ma. kr. frá 2. ársfjórðungi 2024. Helstu breytingar voru þær að verðbréfaeign önnur en hlutabréf hækkaði um 166,9 ma.kr. og hlutafjáreign og annað eigið fé hækkuðu um 180,8 ma.kr. Heildarskuldir fjármálafyrirtækja námu 21.133,0 ma.kr. og hækkuðu um 446,6 ma.kr. á ársfjórðungnum. Helstu breytingar voru þær að seðlar og innlán hækkuðu um 96,0 ma.kr. Nettó fjármunaeign fjármálafyrirtækja á 3. ársfjórðungi 2024 var neikvæð um 193,2 ma.kr.
Staða á útlánum fjármálafyrirtækja til heimila í lok 3. ársfjórðungs 2024 var 3.097,0 ma.kr. þar af námu skuldir heimila með veði í íbúð 2.712,5 ma.kr. Staða á útlánum fjármálafyrirtækja til fyrirtækja í lok 3. ársfjórðungs 2024 var 2.602,4 ma.kr. að teknu tilliti til niðurfærslna. Eign fjármálafyrirtækja í markaðsskuldabréfum fyrirtækja nam 536,0 ma.kr.
Fjármálareikningar eru birtir sem heildar efnahagsyfirlit fjármálafyrirtækja en einnig eru birtar töflur sem skipta þeim niður annars vegar eftir tegundum fjármálafyrirtækja og hins vegar eftir mótaðilum.
Tímaraðir eru birtar fyrir heildina og einnig skiptar niður eftir tegundum fyrirtækja. Til viðbótar eru birtar tímaraðir með skuldum fyrirtækja við fjármálafyrirtæki, annars vegar skipt eftir lánveitendum og hins vegar eftir tegundum lána. Einnig eru birtar tímaraðir með eign fjármálafyrirtækja á skuldabréfum útgefnum af atvinnufyrirtækjum. Tímaröðum með skuldum heimila við fjármálafyrirtæki er skipt eftir lánveitendum og tegundum lána. Einnig er birt tímaröð um skuldir heimila með veði í íbúð sundurliðað eftir tegundum lána.
Fjármálareikningar eru unnir samkvæmt aðferðafræði sem byggir á þjóðhagsreikningastaðli Evrópusambandsins (ESA2010) og staðli Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um hagtölur peninga- og fjármála.
Hagstofa Íslands birtir fjármálareikninga fyrir allt hagkerfið á vefsíðu sinni.
Fjármálareikningar á vefsíðu Hagstofunnar.
Næsta birting:
06.
mars 2025
Töflur
Tímaraðir
Lýsigögn
Annað tengt efni